.No Day But Today.

jee

31.05.2008 00:22:38 / mockingbird__

:: þetter ágætis byrjun

hjelló og gleðilegan 30.maí!  

[[.hlustum á sjálfa okkur slá
í takt við tónlistina
það virðist enginn hlusta
þetta er allt öðruvísi
við lifðum í öðrum heimi
.]]

sumarið er komið þó það sé ekki að sjá á rigningunni hérna á skaganum.. en það er þokkalega hlýtt svo við getum litið kvartað:)

http://www.prime.is/mambo/images/stories/bands/bubbi.jpg

mikið um að vera, 
Skellti mér á Bob Dylan í vikunni með kallinum og tveimur öðrum myndarpiltum. Bobbi var flottur á því en var mjög ósátt hversu lítið var lagt í salinn..  Þetta var í nýju laugardalshöllinni, s.s. þessum sem að er meira langur heldur en breiður, og við Hafþór erum alls ekki þau hæstu í loftinu þannig við rétt sáum glitta i hattin hans Bob Dylan af og til ef við vorum heppin.. Engir skjáir, ekki neitt. Bara hann á sviði og svona 20 ViP sæti aftast í salnum... Bob Dylan á frekar mellow tónlist sem að maður hefði helst vilja geta setið í makindum og notið hans í tætlur! 
Stoppuðum í góðan 1og hálfan tíma þegar við ákváðum að skunda heim með Gulla og fara skoða nyju fartölvuna mina!:D MAckbook Air, "þynnsta fartalva i heimi" ! elska hana.. svo hvít og pretty :haha:

Síðan var kóngurinn sjálfur að spila á skipaskaganum í kvöld.. Við haffi fórum ásamt litlu syss og  vinkonu hennar.. mestmegnis ny lög sem hann spilaði en þau voru bara þokkalega góð! Held að ég skundi bara útí búð á næstunni og slæsi mér í eitt stykki 4 naglar :D

stefnum samt á að fara snemma í háttinn núna því laugardagurinn verður tekinn með trompi og farið í veiðiferð eldsnemma! :D búin að kítla í puttana yfir að komast útí vatnið með stöngina mína.
 
http://i.xanga.com/cryana14/anonymous-love-is-two-of-us-4900846.jpg

En annars þetta var bara smá öpdeit ;) Vildi aðallega bara monta mig yfir Bob Dylan og nyju fatövlunni :haha

Gleðilegt sumar !



» 1 hafa sagt sína skoðun

30.04.2008 17:01:11 / mockingbird__

:: Reykjavík er ekki lengur lítil saklaus borg.

jáh krakkar mínir... bloggsíðan mín svokölluð er alveg á hraðri niðurleið vegna verulegs metnaðarleysis. En svona af og til .. á skrifstofunni.. hef ég fátt betra að gera!

Allavega undanfarnir dagar/vikur/mánuðir hafa farið í lítið annað en að bara njóta lífsins! Fór meðal annars á ball í síðustu viku! jubb.. Believe it or not ákvað að skella mér á skólaball með góðum félögum og tjútta dansgólfið. Skemti mér meirað segja nokkuð vel :D ownaði ljótudansinn, með því einu að stæla ömmu mína á dansgólfinu !:haha: Kvöldið einkenndist af miklum hlátri og góðu fjöri, ásamt einum ofurölva, sem að að sjálfsögðu má ekki klikka í neinu partýi! En verð að viðurkenna það ég stoppaði stutt, var haldin heim á leið um 1 leytið til þess eins að finna kallinn steinsofandi uppí rúmi!;) Skellti bara Simpsons í og sofnaði fljótlega eftir það :P  

Skriftin á þessu nyja blogcentral.is, pirrar mig lúmkst. Vill geta haft litlu verdana stafina einsog í den, finnst þetta letur of stórt! Laga þetta takk!

Sumardagurinn fyrsti var tekinn með trompi með menningarlegu ívafi. Skelltum okkur sveitarúnt, við Hafþór og Tryggvi og fórum að skoða Deildartunguhver(brunn?) Sem að er s.s. uppspretta alls þess heita vatns sem hitar upp húsin okkar meðal annars! Stórmerkilegt alveg:D Og fyrst að við vorum nú í nágrenninu kíktum við á Reykholt og busluðum í Snorralaug. S.s. Þar sem að Snorri var drepinn vegna vanrækslu skyldu sinnar við þáverandi konung! "Eigi skal höggva!" anyone? 
klúrt. 

En fyrir utan það eyði ég mestum mínum tíma með ástinni minni bara heima;D 

Búin að heyra Rottweiler lagið ? "Reykjavík Belfast"? "GAAS! GAAS! GAAS!" Magnað lag alveg hreint búin að vera raulandi gas gas í allan dag! 
.. íslenskt rapp.. klikkar ekki!;)

En nautagúllasið mitt kallar hástöfum, back to ze cooking yes!
Gleðilegt sumar !  

» 0 hafa sagt sína skoðun

10.03.2008 16:07:48 / mockingbird__

:: Ég trúi án þín mitt líf væri, hvorki heilt né hálft.<3

jáh Sæll...
Bloggsíðan ákallaði mig hérna þar sem ég sit fárveik við tölvuna í dauðum punkti í vinnunni, bíð spennt eftir að geta farið að elda kvöldmatinn!:lol: Kvefpestin er alveg að fara með stelpuna, geng bara upp hnerrandi og hóstandi í tíma og ótíma! Eenn nenni ekki alveg að vera fara í eh veikindafrí núna, vinnavinnavinna já!! vantar pening, þarf að blæða í brúðkaupsgjöf í sumar, hammó með það m&p!<3 20 ára trúlofun og þá loksins kemur bröllopið!;) betra seint en aldrei hmm :haha: og alveg hellings kjóla og dótarí handa litlu frænkunni minni sem er að fara koma í heiminn í júlí!:D já kæru lesendur, ég er að verða Særún!! og fyrir ykkur sem ekkert vita í sinn haus, þá er særún systir mömmu minnar, s.s. systir mín er að fara punga út lítilli prinsessu :D og einn frændi líka væntanlegur eftir 17 daga!! úff spenningurinn að drepa mig herna hehe:haha::D:D   

Allavega, löng vika að baki þrátt fyrir að hafa fengið heila 2 daga í vaktafrí.. En þetta á að vera jolly!  það var tekið semi-djamm á laugardaginn. Við Haffi tókum Tryggva með okkur í Reykjavíkurrúnt, sem að byrjaði með bjór handa mér og tryggva í tilefni þess að Haffi var dræver:haha: Fórum og misstum okkur í Tiger og ég með mitt ultra tískuvit valdi föt á strákana;) Þar eftir var okkur hent úr kringlunni þannig við héldum af stað í Keiluhöllina! og svona aldrei þessu vant, þá Vann ÉG! með heil 85 stig en oi! ég vann.. Hefði unnið Haffa í snóker líka ef hann hefði ekki verið svona smámunasamur á tækniatriðin:haha::haha: 
    Síðan bara heim og drykkja með fyrrum bekkjarfélögum í smá tíma, þar til það héldu allir til reykjavíkur aftur þannig mín fór heim að æfa sig í Call of Duty svo ég geti nú fengið að leika memm þegar Haffi minn hverfur inní þetta :haha:

En ætla kalla þetta bara svona smá öpdeit, heyri að uppvaskið er farið að kalla á mig hérna frammi og svo þarf að fara koma matnum í gang!:)

og svona bæ ðe wei, kæru lesendur, ekki vill svo frábærtlega til að þið lumið á alveg snilldarlegum heimilisráðum til að losna við kvef? Ég er jafn kynþokkafull og Pheobe þegar hún fékk sitt kvef... nema það ég syng ekki:$  Öll ráð vel þegin! Nema þeir sem koma með "hætta að reykja" verða flengdir. :haha:

» 1 hafa sagt sína skoðun

28.02.2008 20:55:44 / mockingbird__

:: Aldrei skal ég þér gleyma..



Tileinkað Þorvaldi sem hefur nú yfirgefið þennan skítuga heim sem við lifum á. Handviss um að þú sért kominn á betri stað sykur..

Kynntist Þorvaldi þegar við vorum 15 ára vitleysingar, Bubbi Morthens okkar mesta áhugamál, kóngurinn sjálfur ha:) Allavega gleymi ég seint þeim degi sem við rúntuðum um á litlum polo og hlustum aftur og aftur á Kveðju eftir Bubba sjálfann..


Þar sem englarnir syngja sefur þú
sefur í djúpinu væra.
Við hin sem lifum, lifum í trú
að ljósið bjarta skæra
veki þig með sól að morgni
veki þig með sól að morgni.

Drottinn minn faðir lífsins ljóss
lát náð þína skína svo blíða.
Minn styrkur þú ert, mín lífsins rós
tak burt minn myrka kvíða.
Þú vekur hann með sól að morgni
þú vekur hann með sól að morgni.
 
Faðir minn láttu lífsins sól
lýsa upp sorgmætt hjarta.
Hjá þér ég finn frið og skjól.
Láttu svo ljósið þitt bjarta
vekja hann með sól að morgni
vekja hann með sól að morgni.
 
Drottinn minn réttu sorgmæddri sál
svala líknarhönd.
Og slökk þú hjartans harmabál
sít sundur dauðans bönd.
Svo vaknar hann með sól að morgni
svo vaknar hann með sól að morgni.
 
Farðu í friði vinur minn kær
faðirinn mun þig geyma.
Um aldur og ævi þú verður mér nær
aldrei ég skal þér gleyma.
Svo vöknum við með sól að morgni
svo vöknum við með sól að morgni.
 
Svo vöknum við með sól að morgni
svo vöknum við með sól að morgni.

Hvíldu í friði elsku vinurinn.

» 0 hafa sagt sína skoðun

10.01.2008 16:54:04 / mockingbird__

:: But sometimes it's a good hurt..

 

Haalló tvöþúsundogátta!

 

Hef rosalega góða tilfinningu fyrir þessu nýja ári sem gengið er í garð.. sem er alveg nýtt hef undanfarin ár verið að kafna úr svartsýni og neikvæðni. En nei, held að ég eigi bara eftir að eiga my happyfullest year ever frá því síðan ég var 4ára lítill svíi í gulum sumarkjól á ströndinni.. Thelma á eftir að gera stóra hluti. mjög stóra sem misvel verður tekið í. Sara á eftir að trúlofa sig. Kristín á eftir að verða ofurrík og Júlía eignast kærasta, sem mér á ekki eftir að líka við. jújú bíðið bara! eftir 11 mánuði á allt þetta eftir að hafa gerst. U just wait und see.:!:

Annars þá gleymdi ég að minnast á alveg stærsta atburð desembermánaðar í síðustu færslu! Jómfrúarferðin mín til Vestmannaeyjar! okai flestum finnst það ekkert big deal en á mínum 12 árum á Íslandi hafði ég aldrei svo mikið sem séð Herjólf! Allavega, þannig var mál með vexti að hann Gulli Mac frændi Hafþórs sló upp heljarinnar veislu í tilefni 22 ára afmælis síns í byrjun desember. Eftir að hafa hætt við að hætta við að hætta við að hætta við nokkrum sinnum þá ákváðum við á síðustu stundu að slá til og taka flugið til útlanda! Mættum galvösk á flugvöll vestmannaeyja tók á móti okkur og öðrum sem höfðu deilt sömu flugvél, Gulli í sínu fínasta pússi með kassa bjór í einari og myndavél í hinni! Þaðan beið okkar rúta fulla af eyjapeyjum og meiri bjór, og við rúntuðum um eyjuna og drukkum meiri bjór! Eftir dágóðan rúnt stöðvaðist rútan fyrir utan hús sem að virtist bara vera kviknað í ef marka mætti reykinn sem gaus úr bílskúrnum!  En við nánari athugun voru þetta bara ofur blikk-diskóljós, reykvél, og x breakbeat.is DJ sem hélt uppi stemmingunni langt fram á nótt! Anna Gerða hafði haft sig allavið að elda alveg dýrindis máltið ofan í vitleysingana, humarréttur, kjöt og eg veit ekki hvað og hvað. Brjálað djamm fram á nótt, og við tók enn skrautlegri morgunsár þar sem herbergisfélaginn minn... já ætla bara þegja núna:D ;*<3

En allt kom fyrir ekki og vegna snjóbyls ((á íslandi, já wtf?)) komumst við ekki heim fyrren á mánudagsmorgun:) Awsomest helgi og að ég held bara bilaðasta afmælisveisla sem ég hef séð. Hrós fyrir þetta Gulli, kudos.;)

En já þetta var svona viku post scriptum eh eh .. :haha:

 

Föstudagur á morgun!  Helgarfrí yes? :haha:

En mín bíður núna heitt bað og Harry Potter sem gengur eh voða hægt að lesa:$

Adíos:* 


» 2 hafa sagt sína skoðun

30.12.2007 17:24:54 / mockingbird__

:: dno

npz;; Something corporate - forget december 

já hemmi minn..

Forget December
It won't be better than I remember it before
And this month only
Would be so lonely
And not so holy anymore

Langt um liðið síðan síðast og alltof margt búið að ske!

Byrjum á jólahátíðinni sem er að líða hjá alltof fljótt, ekki vottur af jólagleði búin að segja til sín í ár.. bara hver annar mánudagur bara með fleiri gjöfum og betri mat:) Annars þá var ég með góðan vin minn frá Þýskalandi í heimsókn yfir jólin!  Hann Stefan sem að vann með mér á Hótel Glym, var hérna 22-26 des  :) Held að hann hafi gert meira af húsverkum á þessum örfáu dögum en ég og júlía til samans gegnum ævina!;D Sorglegt þegar hann fór, en það koma væntanlega fleiri dagar seinna :) ég á eftir að láta hann endurgjalda greiðann seinna þegar ég fer í evrópuflakkið mitt;)

Í byrjun desembers var farið í vinnugleði ásamt Glyms starfsfólki, byrjuðum á fjórhjólaferð á Hellisheiðinni,sem að hefði verið ÝKT gaman hefðum við ekki verið skömmuð fyrir að fara hraðar en 25km hraða eða fara úr beinu línunni. Amma mín hefði verið vonsvikin. En engu síður, ágætt. Eftir það tók við dágóður rúntur upp að Hótel Rangá! Þar sem að við boruðum dýrindis mat og drukkum okkur í hel! Frábært hótel sem ég mæli hiklaust með, en fljótlega eftir kvöldmat og óteljandi hvíta rússa , get ég ekki sagt betur frá kvöldinu. *blackout* En Helga sem að var með u.þ.b. 600 myndir frá kvöldinu gat heldur betur fyllt upp í tómarúmið.. sem að ég hefði heldur kosið að hafa aldrei séð. Ferðinni heim fylgdi líka ólýsanlegur hausverkur og dágóðum uppköstum á hellisheiðinni. say no more.

New year's eve came
But nothing had changed
All the problems just got worse
We sat in silence
The routine science
Could heal the sickness we reherse

Annars þá er Gamlársdagur á morgun.. mikil pæling um hvort að maður eigi að kveðja árið 2007 með stæl og byrja bara nýtt líf, ofurölvi á 2008... eða bara taka því rólega í góðum félagsskap..   Það ákveður maður aldrei fyrren 2mínútur í miðnætti:)

En á öðrum nótum þá er Evan komin í enn eina nýja vinnu!  í þetta sinn á Grundartanga í mötuneyti Járnblendis, þar sem að ég býð góðan dag, sker niður grænmeti og malakoff af mikilli list og sýni hæfileika mína í uppvaskinu! mikil tilbreyting frá mínu gamla þjóna-starfi þar sem að brosa  

En ég nenni ekkimeira í bili, gleðileg jólin og nýja árið.

takkbæ

And if I'm talking
My words are mocking
The deaf ears they have fallen on
These words are tainted
With years of jaded
In a sense thats all but gone

Forget December


» 1 hafa sagt sína skoðun

28.12.2007 18:51:22 / mockingbird__

:: I'm dying to win, 'cause I'm born to lose.

Færsla væntanleg!

lofaa :)


» 0 hafa sagt sína skoðun

29.11.2007 19:00:35 / mockingbird__

:: Halló Heimur.. Hér er Ég!

ÉG ER FRÁBÆRASTA BARN SEM ÞIÐ HAFIÐ SÉÉÉÐ !

Góðan Dag:!:

Biðst afsökunar á síðustu færslu, sjaldan verið í jafn vondu skapi og þá:) En eftir að hafa sett síðasta punktinn á undanfarna færslu var tekinn dágóður sígórúntur með Júlíönu sem að einhvern veginn alltaf tekst að kallafram bros:) Allavega eftir að hafa drullað yfir allt og alla í smá tíma þá  fóru hlátrasköllin að segja til sín á ný:P

Talandi um það þá viðurkenni ég það að ég réð ekki við örlítið "L.O.L" þegar eg rak augun í  myndina hér að ofan:haha: 

Fyrst við erum nú að tala um dýr, þá er systir mín að gefa alveg stórskemtilega GULLFISK! Einstaklega appelsínugult kvikindi sem finnst fátt skemtilegra en að synda í hringi. Hann er góður í "störu" leiknum og borðað ekki mikið. HEFURÞÚ ÁHUGA?! hafið samband í síma 896-3756.

Fyrir utan það, tilhamingju með aðsíðasti skóladagurinn er á morgun((!!!!!!!!!!)) og ég samhryggist innilega þeim semað ætla að halda áfram eftir áramót. Takk fyrir góðar stundir, sjáumst ekki aftur í bráð!

AVÚHÚ:!:

En,, ég er víst að fara í próf þannig að ég ætla að enda þetta hérna með örlítið sýnishorn af sköpunargáfu minni, og svo er spurning um að reyna líta aðeins í bækurnar.

túdílú...:!:

Heitasta fólkið í bænum í dag!

» 1 hafa sagt sína skoðun

27.11.2007 16:20:14 / mockingbird__

:: Dancing in the desert, blowing up the sunshine.

SÆLL!

Velkomin á heimasíðu slakasta námsmanns Akranessveitar í dag. Efni dagsins er pirrað röfl og kvartanir undan hinu og þessu. Þið hafið verið vöruð við, http://leikjanet.is fyrir skemtilegri afþreyingar.

Dagurinn í dag, 27.nóvember 2007 er búinn að vera afspyrnuslæmur frá því um leið og ég fór úr rúminu...... BÓKSTAFLEGA, byrjaði á því að stíga beint á eyrnalokkana mína sem að hafa dottið á gólfið einhvern tíman í nótt, og einhvern veginn gátu þeir snúið þannig að festingin (dótið sem fer í gegnum eyrað;) sneri upp og stakkst beint í tábergið. Og við erum bara komin á fyrstu hálfa mínútu dagsins.  Næstu 120 mínútur gengu ágætlega, fyrir utan Sögupróf sem ég var búin að steingleyma. njeh.

En síðan á leið minni upp skóla aftur, tókst mér að beygja eitthvað asnalega, og dúndraði þar með á gangstéttarbrún, skekkti felguna mína, og dekkið væntanlega líka. í mínu yndislega pirraða skapi fór ég heim og ætlaði að henda varadekkinu undir. Eftir aðhafa leitað í u.þ.b. 10 mínútur eftir skiptilykli í réttri stærð, komst ég aðþví að vara dekkið var á líka lint og spaghetti. 

Þannig að ég vældi og kvartaði í pabba, sem sannfærði mig á endanum að leita til fagmanna.

Eftir það skemtilega atvik, kom ég heim og settist á rassgatið fyrir framan tölvusjkáinn með þeim tilgangi einum að gera ritgerð fyrir sálfræði. Opnaði plútó og herregud raunmætingin var tekin gild og takk fyrir það flest öll mín löglegu "veikindaleyfi" voru eftir eftir hádegi...s.s. sálfræði tíminn er alltaf eftir hádegi. en til að gera langa sögu stutta. ég er ekki lengur í sálfræði.

TÍMASÓUN MUCH? Þessi dagur kom mér samt í skilning um það skólinn er evil, ég á ekki að vera í skóla, vill ekki vera í skóla, ég er hætt! sjáusmt aftur þegar ég er orðin 40ára 3barna móðir og er þáfarin að vilja koma aftur. Þangað til næst!

Það er aðdraga úr mér alltof mikla orku að vera svona pirruð, ætla að fara í ljós og lesa vo yndislega leiðilega ensku-sögu sem ég á að skila á morgun.

Étið skít!:)

-EvaKristín. 

 

p.s. þetta kallaði fram bros í annað, vill deila ;;

he he....

» 3 hafa sagt sína skoðun

23.11.2007 15:24:48 / mockingbird__

:: jólahjól

jáh herregud ef það er ekki bara kominn smá vottur af jólafíling í mann =o. Kenni fólkinu sem byrjar að skreyta of snemma um þetta.

Allavega styttist óðum í desembermánuð, fólk er farið að undirbúa sig andlega fyrir stressið og chaosina sem fylgir þessum tíma ársins. Þó að ég sjái lítinn sem engan tilgang fyrir að dressa sig upp til þess eins að borða kvöldmat og kíkja í heimsókn til ömmu og afa, eyða fleiri hundrað þúsund köllum í ný föt, gjafir, jólakort og gjafapakkningar svo eitthvað sé nefnt. Þá viðurkenni ég það fúslega að ég er algert jólabarn innst inni:) Hef lúmskt gaman að þessu þó ég hrauni yfir jólaskrautið og stressið á hverju einasta ári. En svona loksins þegar klukkan slær 6 á aðfangadag, kemur einhvern veginn yfir mannþessi ólýsanlega ánægju/friðsældar tilfinning. Svo ég tali nú ekki um pakkana undir jólatrénu hehe.... ;)

Eeenn ég ætlaði bara örlítið að tjá mig um hátíðina sem nálgast óðfluga.

Leiter!


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.11.2007 12:30:15 / mockingbird__

:: This beggar's plea, an optimistic fantasy.

[[.Shelter me oh genius words
Just give me strength
To pen these things
Give me peace to weld her wings
.]]
 

KrabbiKrabbi: Samkvæmt skilgreiningu er nóg af fólki í meirihlutanum. Sumar af skoðunum þínum eru ekki vinsælar. Þorðu að vera stoltur meðlimur minnihlutans.

Hrikalegt hvernig lífið getur leikið marga grátt... aftur&aftur&aftur... Jarðarför litlu stelpunnar Magdalenu Líf, sem að er að mínu mati eitt fallegasta nafn sem ég nokkurn tíman heyrt, var í morgun. Þessi ófædda litla hnáta er eitt af nokkrum dæmum sem að harðlega undirstrika trúleysi mitt á einhvern "æðri mátt". Þrátt fyrir margar hremmingar, kemur mér alltaf á óvart hvernig fólk getur enþá haldið fast í trúna. Svosem gott og blessað, bara mer ofviða að skilja.

Samhryggist ástkærri fjölskyldu minni í báðar áttir. Þetta er búið að vera erfiður mánuður.

En á léttari nótum, fór í bíó í gær. Á  30 days of night með Hrafnkeli og Júlíönu.. Þessi mynd hreint út sagt fannst mér bara frekar ógeðsleg! Ég sem að hef alltaf hreykt mér af því að vera svo mikill nagli að mér bregði aldrei og sé aldrei hrædd eða hafi tilfinningar yfir höfuð! En þarna sat ég einsog versti kettlingur, samanhnipruð í sætinu mínu og saug puttan milli þess sem ég hélt fyrir augun. Þar fyrir utan alveg ágætis mynd miðað við það að þetta sé Vampírumynd, Hingað til bara Blade sem að hefur náð til mín en það var kanski meira ofursvali vampírubaninn semað hélt mér við efnið!;) En já, þessi mynd. Endirinn var týpískt Hollywood dæmi, aðalgaurinn er hetja og fórnar sér fyrir kærsustuna, og þau horfa saman á sólarupprásina. pretty, yes?

[[.Simply singing for the girl
That makes us try so very hard
To craft the perfect limerick
To wield unending woe
To write such silly songs
And the difference never know
.]]

Fórnaði Heroes fyrir idda mynd. En held að Haffi minn hafi nú tekið það upp fyrir mig þannig þá hef ég eh að gera í kvöld!:)

Ætla samt að fara gera ensku-verkefni áður en næsti tími byrjar.

tjáwbella

-EvaKristín. 


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.11.2007 18:57:17 / mockingbird__

:: I never dreamed that I'd love somebody like you.

 NáwPleyjing:: HIM- Wicked Game.

 [[.The world was on fire, no-one could save me but you
It's strange what desire will make foolish people do
I'd never dreamed that I'd need somebody like you
And I'd never dreamed that I'd need somebody like you
.]]

 

jáhúwf.. Það styttist bara í enn eina helgina! Ætlaði að voga mér að segja helgarfrí en það er ekki case-ið hjá mér. Er búin að vera frá vinnunni núna 2 helgar í röð og er það virkilega farið að koma niður á buddunni minni, sem og þeirra heppnu sem að lenda í því  að þurfa halda mér uppi.:$ En framundan er busybusybusy þannig að Eva litla er ekki að fara gera neitt skemtilegt á næstunni!:(;)

Annars þá var þessi vika ansi fljót að líða. Ég og Haffi tókum fyrsta deitið á þetta og fórum á Galito og átum með bestu lyst sitthvoran Baconborgaran!;) Lentum þó í því að staðurinn fylltist af glaðværum konum +einn kall, og einsog öllum ætti að vera kunnugt er aðþar sem að 3 eðafleiri konur koma saman.. Þar fuglabjarg! Vorum ekki lengi að forða okkur út eftir matinn!;)

[[.What a wicked game to play
To make me feel this way
What a wicked thing to do
To let me dream of you
.]]

Síðan var Manchester leikur í gær, Man.Utd - Dynamo eitthvað. Ég og Thelma mín tókum okkur til og skelltum okkur bara á Mörkina til að horfa á leikinn! Eftir smá stund fór um okkur kunnulegur kjánahrollur þar sem að við sátum þarna litlar smápíkz umkringdar eintómum "eldri" mönnum og dágóðum hóp póllara. Leikurinn mér til mikillar gleði fór 4-0 manchester í vil!;) Arsenal leikurinn hinsvegar var skitinn 0-0 að stöðu, öðrum til mikillar gremju.:$

KrabbiKrabbi: Í dag skaltu halda hlutunum fyrir þig og ekki láta neitt uppi. Vertu léttúðugur og - í guðanna bænum - ekki tala um stjórnmál, siðferði eða smekk. 

Stjörnuspá mbl.is sem ég lifi lífi mínu eftir. luverly.

eenn þá held ég að ég sé bara orðin tóm, kveð ykkur í bili!

-EvaKristín.


» 2 hafa sagt sína skoðun

05.11.2007 22:36:34 / mockingbird__

:: Djamm, klúður, ný vika!

ho ho ho we say hey hey hey!  

újé var það bara mér sem að fannst lagið hans Barða með Gilzenegger og nokkrum vel olíubornum hönks alveg 0fur? Ég allavega er búin aðeiga bágt með að hemja mig um að raula viðlagið af og til. Spái þessu alveg góðu á dansstöðum á næstunni:D

Annars var skammhlaup/skólaball á föstudaginn síðastliðin. Skammhlaupið byrjaði hættulega snemma, og þar sem að það byrjaði bara með dæmalausu klúðri hjá okkur Thelmu endaði það stuttu seinna. Ég var sett sem varamaður í hitt og þetta, sem að ég þurfti síðan ekkert að taka þátt í (( ekki það að ég kvarti )), og thelma snillingur hafði mætt á vitlausan skammhlaupsfund með vitlausu liði og var þar af leiðandi ekki með í neinu heldur! Fegnar því fórum við og lögðum okkur í uþb. klukkutíma og fór restinaf deginum í ágæta leti í tilefni föstudagsins.

Föstudagskvöldið þá tókum við thelma okkur til og ákváðum að dressa okkur ekki upp og mæta skaðvaskar á ball! Byrjuðum bara á sófasötri með Haffa og Dabba, og tróðum okkur svo í kúrekaparty þar sem að hver önnur en litla systir og vinkonur hennar voru mikið mjög hressar á kantinum.. sumar þeirra kanski örlítið of. En þetta minnti kanski dulítið á þegar að maður var sjálfur að byrja uppgötva hinn myrka heim áfengis, tóbaks og meira áfengis. Góðir tímar, ágætt samt að sá pakki gekk fljótt og kanski ekki svo áhrifalaust fyrir sig. jáá í gamla daga sko! Núna er það bara 3-4 á ári sem að er tekið eitthvað almennilega á því og skellt í sig slatta tequila, gylltan viking og Guð má vita hvað meira.

En þetta ball já, Nýdönsk voru plataðir í að koma og spila fyrir dansi ásamt einhverjum DJ á efri hæðinni. Nýdönsk fýlaði sig í tætlur með grúppíum akranesar sem sendi þeim ástaraugu í von um, já hver veit? En það má segja um marga að skemmtunin hafi verið í hámarki en ég veit ekki hvort það sé bara það að áfengisvíman varir stutt en þó í mínu tilfelli en ég fékk nú alveg hellings nóg eftir rétt rúmlega klukkutíma á staðnum. Kanski maður sé bara að vaxa uppúr þessu eða þá áhugaleysið að fara með mann. Heldég haldi mig þó bara við misróleg kojufyllerí með fólki sem ég hef acctually áhuga að vera í sama herbergi með.... í bili allavega;)

En ég ætla segja þessa föstudagsfærslu mína bara góða og fara skunda mér heim á stillholt aftur;)

takkabæ!

-EvaKristín.


» 1 hafa sagt sína skoðun

31.10.2007 13:02:57 / mockingbird__

:: trúir þú á Engla?

Sometimes life seems too quiet
Into paralyzing silence
Like the moonless dark
Meant to make me strong

Familiar breath of my old lies
Changed the color in my eyes
Soon he will perforate the fabric of the peaceful by and by

Sorrow lasts through this night
I'll take this piece of you
And hold for all eternity
For just one second I felt whole
As you fell right through me

 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

17.10.2007 10:04:49 / mockingbird__

:: Untill the day I die.

2059.gif image by evakrjaahhá október er alveg að fara fram úr sjálfu sér held ég!

Byrjum á enhvað af atburðum so far::

  • Leifur var óléttur... en svo var það ekki meira!
  • viku seinna fékk hann þá snilldarhugmynd að FLYTJA bara á Akureyri! og hann er bara takk fyrir að fara stinga af nuna i vikunni!
  • Hulda líka ólétt!
  • ooog Brynja frænka líka ólétt!
  • OG óli níls skilst mér !
  • Júlía litla systir er með eh ælupest/morgunógleði? (nei ég bara spyr allir aðrir að skjóta niður börnum alltíeinu hvað veit maður;)) !
  • Thelma mín á endalausu flakki:!: Var meðal annars rænd í Belgíu takk fyrir!
  • Hún kemur heim í dag.... og fer svo AFTUR á föstudaginn!
  • Thelma sökkar:( !
  • Ísland er lélegt í fótbolta!
  • Ég fann listamanninn í mér aftur!!1!1!! þ.e.a.s. gróf upp einhverja bestu jólagjöf sem ég hef fengið EVER, bók sem að Kristín bjó til handa mér tilað teikna í.. það kom tár og ég fór aftur að teikna:haha: !
  • Fuglarnir mínir eru seldir! Bæbæ Bubbi og Kiza! I shant miss y0. !
  • Skólinn sökkar. !
  • Ludmilu finnst ég sæt. !
  • Ég er EKKI að fara á Airwaves. !

En fyrir utan það þá er allt svona... nokkurn vegin normalish.:)

KrabbiKrabbi: Bjartsýni er leynivopnið þitt. Þér verður strýtt og þín verður freistað til að leggja niður þetta vopn, en þú heldur fast um það. Og það þjónar þér vel.

btw þá er þetta Krabbamerki nákvæmlega einsog tattúið mitt! bara aðeins.. minna..? Mér langar samt í annað. Er með svona Huge ör á bakinu sem ég vill mála yfir:haha: Biðja um það frá jólasveininum bara;)  

Eeenn ætla splæsa mér í kaffi&sígó með mömmu  svona í morgunsárið;)

Þangað til næst!

TjÁw bella;*


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4
Dagsetning
19. maí 2012